Móttaka og eftirlit
Hráefni eru skoðuð við móttöku og geymd í frysti fram að framleiðslu. Kjúklingur kemur ferskur og er nýttur strax.
VOM OG HUNDEMAT Á ÍSLANDI
Norskt fjölskyldufyrirtæki, meira en aldarfjórðungs reynsla og alvöru hráfóður fyrir hunda og ketti.

Sagan á bak við VOM
Magne Østby, slátrari og pylsugerðarmaður, fékk hugmyndina að VOM um miðjan tíunda áratuginn. Kunningi hans leitaði að fóðri fyrir hundinn sinn og Magne útbjó blöndu úr hráu kjöti og fiski. Sú reynsla varð upphafið að fyrirtækinu.
Árið 2000 hófu Magne og eiginkona hans, Henni, framleiðslu á bænum sínum í Trøgstad í Indre Østfold. Framleiðslan er enn á sama stað, í stærra og nútímalegra húsnæði.
Fjölskyldufyrirtæki í Noregi
Synir Magne og Henni hafa tekið við daglegum rekstri. Ole Magnus er framkvæmdastjóri og Vegard sér um rekstur framleiðslunnar. Hjá VOM starfa yfir 30 fastráðnir starfsmenn, meðal annars fólk með menntun og reynslu í matvælaframleiðslu og næringarfræði.
VOM þróaðist í nánu sambandi við sleðahundafólk. Þegar Robert Sørlie vann Iditarod í Alaska árið 2003 fengu hundarnir hans VOM. Í dag framleiðir fyrirtækið fóður fyrir fjölskylduhunda, vinnuhunda, hvolpa og ketti.


Hráefnin skipta máli
VOM notar norskt hráefni úr dýraríkinu frá viðurkenndum sláturhúsum sem einnig afhenda kjöt til manneldis. Kjöt, bein og innmatur mynda grunninn að uppskriftunum.
Með nýtingu innmatar og kjötafskurðar nýtast fleiri hlutar dýrsins. Lifur, lungu og nýru eru dæmi um hráefni sem VOM nýtir í fóðurgerð.
Fóðrið er hvorki með viðbættum litarefnum né rotvarnarefnum. Ekki er bætt við vatni umfram þann raka sem er náttúrulega í hráefnunum.
Undir ströngu gæðaeftirliti
Framleiðslan er undir eftirliti Mattilsynet í Noregi. VOM fylgir föstum verklagsreglum um hreinlæti, hráefnamóttöku og eftirlit.
Hráefni eru skoðuð við móttöku og geymd í frysti fram að framleiðslu. Kjúklingur kemur ferskur og er nýttur strax.
Hráefnin eru vegin eftir uppskrift, möluð og blönduð án hitameðhöndlunar. Vítamína- og steinefnablanda er notuð til að jafna næringarinnihaldið.
Framleiðslulotur eru skráðar til rekjanleika. Sýni úr hráefnum og fullunnu fóðri fara reglulega í efna- og örverugreiningu.
Fóðrinu er pakkað, það fryst og geymt í frystigeymslu. Frystiflutningar taka síðan við til söluaðila.
VOM á Íslandi
Hundahamingja ehf. flytur inn og selur VOM hráfóður á Íslandi undir nafninu VOM og Hundemat Ísland. Þú finnur okkur í Sandgerði.
Við bjóðum fóður fyrir hunda og ketti og aðstoðum þig við að velja úr vörunum okkar. Hafðu samband um fóðurval, pantanir, afhendingu eða hvernig best er að byrja.
Hafa samband → Skoða vörur →
Upplýsingar um sögu og framleiðslu byggja á norsku heimasíðu VOM. Ljósmyndir frá VOM.